Bloggið Halla

Wednesday, August 16, 2006

Halli á Radiohead tónleikum

Ommi! Stones og Pearl Jam hljómar mjög vel þó ég sé ekki bjartsýnn á að meika það á þessa tónleika. Þó svo að ég myndi alveg láta sjá mig dauðan á Radiohead tónleikum þá myndi ég ekki meika þá lifandi... Það er ekki að ég sé eitthvað rokk-snobb heldur er ég bara staðfastur minni sannfæringu um hvað sé góð músík og hvað sökki. Hafandi sagt það þá vil ég benda á að áður en Sigurrós þótti rosa fín músik í útlöndum þá þoldi enginn sem ég þekki þessa hljómsveit og þótti hún tilgerðarleg. Í dag eru allt í einu allir, að sönnum rokkurum og músikloverum undanskildum, farnir að tjalda í Ásbyrgi og ég veit ekki hvað til ná tónleikum með þessari frábæru hljómsveit. Hver sem ástæðan er þá get ég bara ekki samþykkt þessa drengi. Ef fólk vill endilega elska þessa hljómsveit þá er það bara í fínu lagi en ekki snobba fyrir músík sem þykir fín og töff. Ég skal bara hlusta á David Gilmour og Steve Vai heima í stofu á meðan og allir geta verið vinir.

Alli! Gott að sjá þessar myndir úr fortíðinni. 2003 segiru... ég er ekki viss en ég held að ég hafi ekki keypt þessa skyrtu fyrr en 2004. Heimir var einmitt í henni á söngvakeppni framhaldskólanna og það var 2004 og þá var hún ný. En, whatever, þessi ártöl eru öll farin að skolast til hjá mér... of mikil öldrykkja gæti verið að spila inní...

Enginn vildi tjá sig um lag dagsins síðast með hinni frábæru hljómsveit "Alien Death" en það band er ekki til...eða hvað?

Lag dagsins er "Hoppa í Polla" með Sigurrós. Allir að hlusta á það og hugsa um hvort þetta sé góð músík really!!

1 Comments:

  • Mikið er ég sammála þér þarna. Sigurrós er alvarlega leiðinleg og heiðarleg rokkhljóðfæri dregin til dauða í þessari þunglyndismykju og aumingjavæli. Ég skal koma með þér á Pearl Jam hinsvegar.

    By Blogger Stebbi, at 22/8/06 21:44  

Post a Comment

<< Home