Bloggið Halla

Tuesday, August 22, 2006

Tímamót

Ég hef ákveðið að láta af allri ljóðaiðkun í bili og þess í stað ætla ég að vera vélaviðgerðabrjálæðingur með smurningu í hárinu, borða heddpakkningar í morgunmat og skeina mér með olíuklístruðum grisjum og gaddavír.

Annars er það að frétta af mér að ég byrja í nýju vinnunni minni á mánudaginn kl. 10.00 í Tónlistarskólanum. Það er ekkert nema allt gott um það að segja og hananú.

Fór að gefa öndunum í dag. Sko endur, ekki andar. Ég er mikið að pæla hvernig endurnar viti hvað sé andapollurinn. Ef maður gerir poll og skírir hann andapoll koma þá bara endur? Er það bara svoleiðis? En ef ég geri Pamela Anderson-poll? Hmmmm...

Lag Dags: "Current of Love" með David Hasselhoff, bara fyrir Stebba Gunn sem er búinn að týna ritvélinni sinni og hættur að uppfæra sitt blaug.

2 Comments:

  • Sex dagar og engin færsla !!! Koma shohhhh !!!

    By Blogger Stebbi, at 28/8/06 23:22  

  • Shit...er verið að telja. Það er gott að fara að finna einhverja vitleysu að skrifa um. Það er bara ekkert að gersat hjá mér þessa dagana. Hangi bara heima og hef það gott...

    By Blogger Hallgrímur Ingvason, at 30/8/06 17:56  

Post a Comment

<< Home