Bloggið Halla

Friday, October 28, 2005

Fyrsta bloggið mitt...

Já, min damer und meine herrer. Þetta er fyrsta blogg míns eigins lífs! Hlakkar ekkert smá til þegar allir fara að segja mér hvað ég sé skemmtilegur og svo eignast ég náttúrulega fullt af nýjum vinum og kynnist fólki á netinu allstaðar af úr heiminum. Mig dreymdi í nótt að ég væri í London og það komu geimverur sem fóru að rústa öllu og drepa með geislabyssum. Kannski ætti ég ekki að hlusta meira á War of the Worlds en það er mesta snilldar plata sem ég hef uppgvötað síðan ég uppgvötaði síðustu snilldarplötu um daginn sem var The Pros and Cons of Hitchhiking með Roger Waters. Eric Clapton á gítar og rosa Wall fílingur í gangi.

Hlakkar til að sjá Elvis showið á morgun en ég er að fara að spila í einmitt því showi eftir áramótaskaupið. Gaman að því...

Að lokum ætla ég að koma með lag dagsins en það er: Úti er alltaf að snjóa með Sniglabandinu, af því að það er að snjóa einmitt núna, sem er ekki gott af því þá breytist ég í innipúka dauðans og fer að horfa á geimmyndir og fæ martraðir...

0 Comments:

Post a Comment

<< Home