Bloggið Halla

Monday, November 06, 2006

Rok

Ég lenti illa í hvassviðrinu í dag. Þegar ég fór út þá fékk ég trampólín í ennið og missti samstundis meðvitund. Þegar ég rankaði við mér hafði ég fokið inn um gluggann hjá gamalli nágrannakonu minni. Ég reyndi að komast á lappir og útskýra málið, alblóðugur í framan, en hún ösrkaði bara á mig og hélt að ég væri að ræna hana svo hún skvetti sjóðheitu kaffi framan í mig og lamdi mig svo með kaffikönnunni í hausinn. Ég staulaðist því tilbaka sömu leið og ég kom inn bara til að rifja upp á mjög sársaukafullan hátt að hún býr á annari hæð. Þegar ég hafði á ótrúlegan hátt reddað sjálfum mér aftur heim og læknað sjálfan mig af skurðum, brunasárum og brákuðum beinum, komið mér vel fyrir í sófanum með kók og farstýringuna þá var ekkert í sjónvarpinu nema L-Word. Þannig að ég fór aftur út...


Lag dagsins er "Winds of change" með Scorpions.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home