Bloggið Halla

Friday, July 21, 2006

Föstudagur úldnsins

Það segja allir að ég sé orðinn svo steiktur eitthvað þegar menn hitta mig. Ég veit ekki hvað það þýðir en ég held að eina skýringin sé að ég hafi verið numinn brott af geimverum og þær hafi komið fyrir pínlitlum hlut í heilanum á mér og þetta séu fyrstu einkenni þess að þær munu tjá sig í gegnum mig og með vélabrögðum munu þær yfirtaka veröldina og allt í mínum líkama. Þannig að andlit mitt verður hið nýja andlit heimsleiðtoga jarðarinnar. Shit, hvað ég er samt ekki að nenna því. Ég nenni ekki einu sinni að klára venjulegan vinnudag. Það er líka föstudagur og maður er að komast í chillgírinn. Samt er ég að spila annaðkvöld. Það er forsenda fyrir því og fjörið verður ómælanlegt.

Í gær var 20.júlí. Sá dagur er merkilegur fyrir það að samkvæmt einhverri síðu á netinu átti að vera hægt að breyta sporbaug jarðar með því að fá alla á ákveðnu svæði til þess að hoppa á sama tíma. Þá myndi jörðin færast. Þetta átti að gerast í gær. Ég er nú búinn að sjá nógu margar Hollywood-framleiddar stórslysamyndir til að vita að þetta gengur ekki. Fólkið hefði að sjálfsögðu átt að hoppa með skólatösku á bakinu.

The Song of the Day is "Jump" með Van Halen.

Thursday, July 20, 2006

Heim

Já, ég er kominn heim. Meira að segja löngu kominn. Ég var á Tenerife sem er eyja á Kanarí-eyjum. Þegar maður fer í svoleiðis ferð er maður ekki að skoða heiminn heldur meira bara að skoða aðra túrista. Það er í lagi því ég er nýbúinn að vera í Hollandi og þar náði ég að skoða heiminn rosa vel...

Ég væri geðveikt til í að fara til Ítalíu. Kannski maður geri það næsta sumar...

Lag daxins er "Bike" eftir Syd Barrett sem dó á afmælisdeginum mínum. Hann var svalur.