Bloggið Halla

Tuesday, December 19, 2006

Vangaveltur

Ef þið væruð að pissa á skemmtistað og mynduð missa eitthvað ofaní klósstið, hversu ómerkilegur eða merkilegur hlutur yrði það að vera til að þið mynduð dífa hendi í skemmtistaðaklósettvatn til að endurheimta hann? Allir að vera með. Hvað af eftirfarandi hlutum myndi fólk ná í og í hvaða tilfellum myndi fólk sturta. Af því að þetta eru tilbúnar aðstæður þá gefum við okkur að það sem fer í vatnið skemmist ekki.

-debetkort

-gemsi

-úr

-dýrt úr

-mynd af þér og Jay Leno

-mynd af þér og Gesti Einari

-mynd af þér og mér

-mynd af mér

-iPod

-iMac

-símanúmerið hjá Völu Matt

-miði með url-inu af þessu bloggi


The leig of the deig is: "My United States of Whatever" með Liam Lynch

4 Comments:

  • Ég myndi stinga mér með höfuðið á undan til að bjarga lagi daxins og kannski líka ef ég missti myndirnar af okkur sem ég tók í Finnlandi á meðan þú svafst ...

    By Blogger Stebbi, at 19/12/06 18:20  

  • Ég neita að hafa verið í Finnlandi. Þetta er algjör þvæla. Þeir sem halda þessu fram eru einstaklingar sem eru á biðlista eftir námi í skólanum og hafa lagst svo lágt að falsa gögn gegn mér. Það var meira að segja brotist inn í skrifstofuna mína og komið fyrir ærumeiðandi gögnum í tölvunni minni. Þetta er algjör firra. Það eru bara menn sem vilja komast í stólinn minn og þeir verða að hafa sínar sögur. Um hvað vorum við annars að tala...??

    By Blogger Hallgrímur Ingvason, at 19/12/06 23:37  

  • Er þetta ekki bara spurning um hversu fullur maður er

    By Anonymous Anonymous, at 21/12/06 01:45  

  • Og náttúrulega ef maður er kominn með númerið hjá frú völu er svo sem ekkert eftir nema að stinga höfðinu í settið

    By Anonymous Anonymous, at 21/12/06 01:47  

Post a Comment

<< Home