Bloggið Halla

Saturday, October 14, 2006

Halli...First Blood.

Ég hef ekki verið iðinn við bloggið að undanförnu. Ástæðan fyrir því er að ég hef hafið skrif á mínu fyrsta kvikmyndahandriti. Um er að ræða postmodern nútímasögu með súrealísku ívafi um dreng sem elst upp hjá górillum. Hann lærir að bjarga sér í frumskóginum og verður um síðir konungur apanna. Svo koma geimverur og gera árás og hann neyðist til að flýja með son sinn og dóttur til Boston þar sem mamma barnanna dvelur. Í lokin finnur hann svo ástina um borð í risastóru skemmtiferðarskipi þar sem hann kynnist ungri konu sem komin er af yfirstéttum en þau ná að brjóta niður múra stéttaskiptingar. Áður en um líkur ná náttúruöflin völdum og þá er ekki spurt að leikslokum.

Lag dagsins er: "Black Dog" með Led Zeppelin

Thursday, October 05, 2006

Það sem ég man ekki...

Gamlir félagar tóku gott djamm um helgina. Það var hressandi að sjá að menn hafa lítið breyst og enn minna þroskast. Mér tókst að innbyrgða jafn mikið áfengi á einu kvöldi og Keith Richards gerir á mánudögum fyrir hádegi og eins og gefur að skilja er minnið gloppótt.

Ég og nokkrir vel valdir félagar vorum fengnir til að spila í showi í Sjallanum þar sem fram koma þau Helena Eyjólfs, Þorvaldur Halldórs og Heiða Idol. Ef að ég verð jafn hress og Helena þegar ég verð fimmtugur þá verð ég sáttur. Hún er alltaf sú hressasta á svæðinu þó að hún sé búin að vera lengur í bransanum en flestir.

Lag daxins er "Hoppsa Bomm". Þokkalega!