Bloggið Halla

Wednesday, January 31, 2007

Hugeyðing Dagsins

Af hverju er enginn búinn að framleiða bíl sem er alveg eins og venjulegur bíll nema stýrið snýr í öfuga átt? Sem sagt þannig að ökumaðurinn myndi horfa út um afturgluggann og allir myndu halda að maður væri að bakka og myndu fríka út við að mæta manni. Það væri mjög sniðugt að mínu mati. Ég vil benda bílaframleiðendum sem lesa bloggið mitt (þeim fjölmörgu) á að þessi hugmynd hefur þegar verið skjalfest á einkaleyfisskrifstofu Montenegro(K.F.F.)


Lag dagsins er "Panda" með sænsku hljómsveitinni Dungen.

Sunday, January 28, 2007

Keep on bloging in the free world

Ég hef ekki mikið verið að blogga að undaförnu og er þar um að kenna sívaxandi aksmmdegisþunglyndi. Hef ég verið svo skammdegisþunglyndur að jafnvel þeir sem þjást að miklu skammdegisþunglyndi hafa það á orði að ég sé afar skammdegisþunglyndur. Skammdegisþunglyndi er án efa það algengasta hér á landi enda þjást margir af skammdegisþunglyndi á hverju ári. Með því að hafa íbúðina sína vel upp lýsta á kvöldin má verulega draga úr skammdegisþunglyndi og jafnvel má spila upplífgandi tónlist ef skammdegisþunglyndið er farið að segja til sín í allri birtunni. Gott er líka að klæðast björtum fötum í skammdegisþunglyndinu og rayna að fara snemma að sofa á kvöldin svo að skammdegisþunglyndið verði ekki viðvarandi. Skammdegisþunglyndi má líka halda niðri með því að breyta einhverju í daglegu rútínunni, svo sem að fá sér Speial K í staðinn fyrir Coca Puffs. Einnig er hægt að koma í veg fyrir skammdegisþunglyndi með einfaldri skurðaðgerð. Nánari upplýsingar um skammdegisþunglyndisafnemunarskurðaðgerðina má nálgast á www.skammdegisthunglyndisafnemunarskurthathgerth.is/afnemunarskurthathgerth.html


Lag dagsins er "Space Queen" með 10 Speed.