Bloggið Halla

Monday, November 21, 2005

Ef ég væri einræðisherra heimsins myndi ég...

...gera Ísland að skattaparadís þannig að allir olíukóngarnir í útlöndum myndu geyma sín óendanlegu auðæfi í bönkunum mínum og þann pening myndi ég nota til þess að lána fólki fyrir fasteignum á himinháum vöxtum. Munið að Ísland væri skattaparadís þannig að allir væru bara sáttir við vextina mína.

...leggja niður alla stjórnmálaflokka á landinu. Það er enginn þörf fyrir þá ef einræðisherra heimsins býr á Akureyri. Það eina sem þessir stjórnmálaflokkar gera, hvorteðer, er að rífast um skatta (sem væru nú að mestu aflagðir) og byggja mislæg gatnamót um alla Reykjavík.

...banna öllum að tala í útvarpinu. Bara músík. Þá myndi fólk ekki þurfa á öllum þessum geðlyfjum að halda í þessu landi. Svo kenna allir myrkrinu í skammdeginu um. Auðvitað verða allir myglaðir á því að hlusta á fréttir tíu sinnum á dag og dægurmálaútvarp þess á milli.

...loka á allt blogg svo geðveikir menn gætu ekki tjáð sig á frjálsan og opinberan hátt bara til þess að róta í hugsunum fólks sem bestar eru geymdar algjörlega órótaðar.

...ráða David Hasselhoff sem minn aðalráðgjafa.


Lag dagsins er hin nýja útgáfa af Hjálpum þeim.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home