Bloggið Halla

Sunday, June 18, 2006

Útlönd

Ég er að fara til útlanda. Það er mín eina von að "Close to home" sé ekki á dagskrá á Tenerife! Sá leiðinda þáttur er einhvernveginn alltaf á þegar ég kveiki á sjónvarpinu mínu. Það er 17.júní í dag og hugleiðing dagsins er hvort "Hæ, hó jibbý jei og jibbý jei það er kominn 17.júni" sé gott eða vont lag. Það gæti jafnvel verið hægt að halda því fram að "Hæ hó" sé ekki siðfræðilega rétt upphrópun. Ég segi bara að það er gríðarlega jákvætt að meaður þarf ekki að heyra þetta lag nema einu sinni á ári (17.júní). Kannski er ég bara fílupúki sem vill bara hlusta á Pink Floyd eða Deep Purple en mér finnst þetta lag bara alveg leiðinlegt!!

Hvað er annars svona æðislegt við 17.júní? Ef við værum undir stjórn Dana gæti Eiður verið í danska landsliðinu og við ættum séns að komast á stórmót. Við gætum drukkið ódýran Carlsberg í staðinn fyrir dýran Viking og verið ligeglad Danir í góðum fíling. Legoland hefði ekki þurft að flytja verksmiðjurnar til Kína heldur til Íslands í staðinn og allt pólska fólkið hefði getað unnið þar. Þá hefði líka þetta böggandi lag aldrei verið samið!


Lag dagsins er "Set the controls for the heart of the sun" með Pink Floyd. Gott lag að hlusta á til losna við heilalímið sem er búið að spila í allan dag út um allt.

Thursday, June 15, 2006

Friðhelgi einkalífs

Ég vil biðja þá sem hafa eitthvað út á skrif mín, á þessu bloggi mínu, að setja að skrifa bara í "comments" dálkinn sem er neðan við hverja færslu. Þessar símhringingar á nóttunni eru alveg óþarfar og truflandi. Það er ekki mér að kenna að skjáleikureinn á RÚV hafi verið lagður niður, það bara hlýtur að vera eitthvað hægt að finna sér að gera ef maður er andvaka.

The laig of the day: "Sleeping my day away" Disneyland after dark. Góð Músík!

Wednesday, June 14, 2006

Roger Waters

Ég skellti mér suður á tónleika snillingsins. Orðin eru ekki til. Því hef ég ort lítið kvæði til þess að festa minninguna á bloggi.

Keyrði langar leiðir,
í bíl.


Ég fór líka til Hollands. Þar var ég að spila með Sigga og Stebba. Það eru myndir af atburðinum á bloggsíðu Stebba og margt skemmtilaegt að skoða þar. Það er mjög gaman fyrir þá sem vita urlið hans...

Það gerðist mergt fróðlegt í þessari ferð og ýmislegt sem átti sér stað sem verður lengi í minnum haft. En til þess að ramma inn þessa reynslu hef ég sett saman lítið kvæði, sem oft áður.

Keyrði langar leiðir,
í bíl.


Lag dagsins hlýtur að vera "Leaving Beirut".