Útlönd
Ég er að fara til útlanda. Það er mín eina von að "Close to home" sé ekki á dagskrá á Tenerife! Sá leiðinda þáttur er einhvernveginn alltaf á þegar ég kveiki á sjónvarpinu mínu. Það er 17.júní í dag og hugleiðing dagsins er hvort "Hæ, hó jibbý jei og jibbý jei það er kominn 17.júni" sé gott eða vont lag. Það gæti jafnvel verið hægt að halda því fram að "Hæ hó" sé ekki siðfræðilega rétt upphrópun. Ég segi bara að það er gríðarlega jákvætt að meaður þarf ekki að heyra þetta lag nema einu sinni á ári (17.júní). Kannski er ég bara fílupúki sem vill bara hlusta á Pink Floyd eða Deep Purple en mér finnst þetta lag bara alveg leiðinlegt!!
Hvað er annars svona æðislegt við 17.júní? Ef við værum undir stjórn Dana gæti Eiður verið í danska landsliðinu og við ættum séns að komast á stórmót. Við gætum drukkið ódýran Carlsberg í staðinn fyrir dýran Viking og verið ligeglad Danir í góðum fíling. Legoland hefði ekki þurft að flytja verksmiðjurnar til Kína heldur til Íslands í staðinn og allt pólska fólkið hefði getað unnið þar. Þá hefði líka þetta böggandi lag aldrei verið samið!
Lag dagsins er "Set the controls for the heart of the sun" með Pink Floyd. Gott lag að hlusta á til losna við heilalímið sem er búið að spila í allan dag út um allt.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home