Bloggið Halla

Friday, May 26, 2006

Það var einu sinni...

...prestur sem mætti öðrum manni á göngu í listigarðinum. Maðurinn bar í annari hendi tösku sem var með ansi skrítnu lagi og fann presturinn sig knúinn til þess að spyrjast fyrir um innihald hennar. Þegar presturinn hafði kurteisislega kynnt sig og spurt manninn hvað væri í töskunni, horfði maðurinn á hann eins og hann ætlaði að svara engu en sagði allt í einu: "Básúna!". Þá sagði prestur: "Nú, ertu básúnuleikari? Hefurðu þá heyrt í Tony Levin". Maðurinn svaraði um hæl: "Tony Levin er bassaleikari fíflið þitt!".

Lag daxins er hið franska eurovisionlag sem fékk eigi mörg stig.

1 Comments:

  • Allir brandarar sem fjalla að einhverju leiti um Tony Levin eru fyndnir

    By Blogger Stebbi, at 26/5/06 16:13  

Post a Comment

<< Home