Bloggið Halla

Tuesday, November 22, 2005

Hlutir sem ber að varast.

Þegar maður er að byggja eitthvað er oft þörf á því að reka nagla í spýtu eða planka. Það vill þá brenna við að menn séu kærulausir með hamarinn og passi ekki nógu vel að þeir lemji ekki á puttann á sér. Lemji maður á puttann á sér er hætta á því að hann bólgni, mar getur myndast undir nögl og puttinn jafnvel brotnað.

Brjóti maður fleiri en einn putta er hætt við að hversdagslegir hlutir eins og að keyra bíl, velja sér ávexti í búð eða púsla púsluspil gætu orðið mjög erfiðir og jafnvel ógerlegir.

Sé þörf á því að fara upp í stiga, t.d. til þess að skipta um peru, er mjög gott ráð að biðja vin sinn um að halda við stigann. Við það minnka líkurnar á falli verulega. Ekki þykir vænlegt til árangurs að reyna að skipta um peru hafi maður brotið á sér putta. Enn óráðlegra er að reyna það séu fleiri en einn brotinn.

Falli maður úr stiga í töluverðri hæð er mjög líklegt að leggur bólgni, fari úr lið eða jafnvel brotni. Falli stiginn einnig og lendi ofan á manni er hætta á að báðir leggir brotni. Ef svo ber undir er mikilvægt að halda ró sinni.

Sé maður búinn að byggja það sem átti að byggja, vilja menn oft mála hlutinn eða húsið. Þá er mjög áríðandi að velja góða málningu og að liturinn sé við hæfi. Einnig er gott að hafa góða pensla og rúllur til verksins. Hafi maður brotið báða leggi og fleiri en einn putta er hinsvegar ekki ráðlegt að reyna að mála. Sé maður of bráður gæti allt eins farið svo að málning festist í hári og augum.

Hafi málning fests í hári og augum er áríðandi að missa ekki stjórn heldur halda ró sinni. Besta ráðið er að bera ísmola að málningunni og reyna að frysta hana. Þegar því hefur verið náð ætti það að vera barnaleikur að lemja hana úr með hamri. Ekki er þó heppilegt að lemja sig í augun heldur þurrka einfaldlega úr þeim málninguna með klút eða rakri tusku.

Séu báðir leggir brotnir, fleiri en einn putti brotinn og málning föst í hári og augum gæti verið gott að leita læknis. Mikilvægt er þó að missa ekki stjórn á geðsmunum sínum því það getur verið mjög krefjandi verkefni að keyra bíl í þessu ástandi.


Lag dagsins er 99 með Toto en það er á Bylgjunni akkúrat núna!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home