Bloggið Halla

Monday, November 28, 2005

Snjór

Það hefur tekið til við að snjóa úti í nótt. Í tilefni að því hef ég ort kvæði.

Snjóþekja hylur hæð og lægð
Óðar rökkvar í minnum
Skurðir fyllast af fönn og fólki sem dottið hefur oní þá
Það er ekki gott að lenda í því


Hvet ég, að lokum, alla til að kynna sér tilboð á matvöru í ýmsum verslunum.
Takk fyrir og góðar stundir.

Lag dagsins er "Silence is golden" með Tremelos. Gott í frostinu.

Thursday, November 24, 2005

Reka Ísland

Ég heyrði upptöku af alþingi í dag. Þar voru menn ekki að ræða vandamál á borð við plássleysi á elliheimilum eða yfirvogandi verkfall sjúkraliða. Þeir voru ekki að ræða vandamál leikskólanna. Þeir voru þess í stað að tuða um erindagjörðir þingmanna í hinum og þessum flokkum og stöðum. Mest fór fyrir brjóstið á Steingrími J. að menntamálaráðherra skyldi vera staddur í Senegal en ekki að hlusta á erindið hans á alþingi Íslendinga. Þegar hann hafði lokið máli sínu komu aðrir ráðherrar og tjáðu sig um umæli Steingríms. Þeir bentu á að aðrir ráðherrar úr öðrum flokkum voru ekki viðstaddir.

Þetta voru þeir að eyða tímanum í á alþingi. Við erum lítið land. Við erum með ríkisstjórn og stjórnarandstöðu. Í stað þess að ræða vandmál sem blasa við eru menn að rífast innbyrgðis eins og pelabörn. Allir vilja að sjónarmið síns flokks nái fram að ganga. Gáfulegt!!

Er ekki málið að láta skjáeinn gera þátt svipaðan þeim sem Donald Trump gerði og skipa nýja ríkisstjórn byggða á hæfileikum og getu keppenda. Davíð Oddson gæti verið í hlutverki trump, það er hvorteðer ekkert að gera í seðlabankanum. Við gætum bara sent núverandi ríkisstjórn eins og hún leggur sig til Senegal.

Hallinzky hefur talað.


Lag dagsins er að sjálfsögðu "Spirit of man" úr War og the Worlds eftir Jeff Wayne.

Wednesday, November 23, 2005

Leiðrétting.

Mér varð Á að minnast Á að ég hefði verið að hlusta Á Bylgjuna í gær. Það er að sjálfsögðu ekki rétt enda er ég rokkari og hlusta bara á Megadeth og borða hrátt villisvínakjöt meðan að ég læt tattoo-era hauskúpur undir iljarnar á mér.

Ég vil biðjast velvirðingar á þessum misskilning en sannir rokkarar biðjast að sjálfsögðu aldrei velvirðingar á neinu þannig að ég er klofinn í afstöðu minni.

Lag dagsins er Hangar 18 með Megadeth en það hefur aldrei heyrst á Bylgjunni.

Tuesday, November 22, 2005

Hlutir sem ber að varast.

Þegar maður er að byggja eitthvað er oft þörf á því að reka nagla í spýtu eða planka. Það vill þá brenna við að menn séu kærulausir með hamarinn og passi ekki nógu vel að þeir lemji ekki á puttann á sér. Lemji maður á puttann á sér er hætta á því að hann bólgni, mar getur myndast undir nögl og puttinn jafnvel brotnað.

Brjóti maður fleiri en einn putta er hætt við að hversdagslegir hlutir eins og að keyra bíl, velja sér ávexti í búð eða púsla púsluspil gætu orðið mjög erfiðir og jafnvel ógerlegir.

Sé þörf á því að fara upp í stiga, t.d. til þess að skipta um peru, er mjög gott ráð að biðja vin sinn um að halda við stigann. Við það minnka líkurnar á falli verulega. Ekki þykir vænlegt til árangurs að reyna að skipta um peru hafi maður brotið á sér putta. Enn óráðlegra er að reyna það séu fleiri en einn brotinn.

Falli maður úr stiga í töluverðri hæð er mjög líklegt að leggur bólgni, fari úr lið eða jafnvel brotni. Falli stiginn einnig og lendi ofan á manni er hætta á að báðir leggir brotni. Ef svo ber undir er mikilvægt að halda ró sinni.

Sé maður búinn að byggja það sem átti að byggja, vilja menn oft mála hlutinn eða húsið. Þá er mjög áríðandi að velja góða málningu og að liturinn sé við hæfi. Einnig er gott að hafa góða pensla og rúllur til verksins. Hafi maður brotið báða leggi og fleiri en einn putta er hinsvegar ekki ráðlegt að reyna að mála. Sé maður of bráður gæti allt eins farið svo að málning festist í hári og augum.

Hafi málning fests í hári og augum er áríðandi að missa ekki stjórn heldur halda ró sinni. Besta ráðið er að bera ísmola að málningunni og reyna að frysta hana. Þegar því hefur verið náð ætti það að vera barnaleikur að lemja hana úr með hamri. Ekki er þó heppilegt að lemja sig í augun heldur þurrka einfaldlega úr þeim málninguna með klút eða rakri tusku.

Séu báðir leggir brotnir, fleiri en einn putti brotinn og málning föst í hári og augum gæti verið gott að leita læknis. Mikilvægt er þó að missa ekki stjórn á geðsmunum sínum því það getur verið mjög krefjandi verkefni að keyra bíl í þessu ástandi.


Lag dagsins er 99 með Toto en það er á Bylgjunni akkúrat núna!!

Monday, November 21, 2005

Ef ég væri einræðisherra heimsins myndi ég...

...gera Ísland að skattaparadís þannig að allir olíukóngarnir í útlöndum myndu geyma sín óendanlegu auðæfi í bönkunum mínum og þann pening myndi ég nota til þess að lána fólki fyrir fasteignum á himinháum vöxtum. Munið að Ísland væri skattaparadís þannig að allir væru bara sáttir við vextina mína.

...leggja niður alla stjórnmálaflokka á landinu. Það er enginn þörf fyrir þá ef einræðisherra heimsins býr á Akureyri. Það eina sem þessir stjórnmálaflokkar gera, hvorteðer, er að rífast um skatta (sem væru nú að mestu aflagðir) og byggja mislæg gatnamót um alla Reykjavík.

...banna öllum að tala í útvarpinu. Bara músík. Þá myndi fólk ekki þurfa á öllum þessum geðlyfjum að halda í þessu landi. Svo kenna allir myrkrinu í skammdeginu um. Auðvitað verða allir myglaðir á því að hlusta á fréttir tíu sinnum á dag og dægurmálaútvarp þess á milli.

...loka á allt blogg svo geðveikir menn gætu ekki tjáð sig á frjálsan og opinberan hátt bara til þess að róta í hugsunum fólks sem bestar eru geymdar algjörlega órótaðar.

...ráða David Hasselhoff sem minn aðalráðgjafa.


Lag dagsins er hin nýja útgáfa af Hjálpum þeim.

Thursday, November 17, 2005

Fimm staðreyndir um mig...

Ég hef engan áhuga á bílum. Draumabíllinn minn er Volvo af því að ég vil bara áreiðanlegan og öruggan bíl.

Ég hef haldið upp á Iron Maiden síðan ég var 9ára gamall. Það eru að verða 20ár síðan. Ég hlustaði samt ekki á þá á Blaze Bayley tímabilinu. Það var ekki Maiden í mínum huga!

Ég hef lyft 145kg í bekkpressu.

Uppáhalds bíómyndin mín er Clockwork Orange. Ég get samt ekki útskýrt út af hverju hún er svona góð. Hún er bara snilld í sinni eigin snilld.

Ég á sjö gítara.


Lag dagsins er öll lög með Iron Maiden sungin af Bruce Dickinson eða Paul DiAnno.

Tuesday, November 15, 2005

Mig langar í...

...nýju Rammstein plötuna. Ég hef það á tilfinningunni að hún sé snilld. Bara til að hafa það á hreinu: Hljómsveitir gefa út plötur, ekki diska.

...plasma sjónvarp. Af því að nýja 29" Sony sjónvarpið mitt er allt í einu risa hlunkur sem ekkert pláss er fyrir í stofunni. Með þessu áframhaldi verður maður að skipta um sjónvarp á tveggja ára fresti. Sjónvarp!! Hver þarf að fara til útlanda ef hann getur eitt 300þús í sjónvarp. Ég tek þetta til baka! Mig langar ekkert í plasmasjónvarp! Hefur fólk í alvöru ekkert betra að gera en horfa á rándýrt æðislegt sjónvarp sem hangir eins og málverk á veggnum. Frekar fæ ég mér Les Paul.

...Gibson Les Paul gítar! Til að mótmæla öllum sem fá sér plasma sjónvarp!

...allar plötur Bítlana í vínyl. Það væri æði. Bítlarnir eru góðir með smá risp í bakgrunninn.

...flott, hlý föt. Af því að það er að verða svo kalt úti um þessar mundir. Þá er nú alveg málið að fara í 66°norður og eyða svona hundraðþúsundkalli. Þá meikar maður að fara út í kuldann en hangir ekki inni alla daga og verður eins og afturganga. Ég er kuldaskræfa dauðans.

Lag dagsins er "Little aint enough" með David Lee Roth.

Monday, November 14, 2005

Hlíðarbær og Gaukurinn

Ég var að spila á frábæru balli í Hlíðarbæ á föstudaginn og er að fara að spila á Gauk á Stöng næstkomandi föstudag. Það er orðið langt síðan ég var í borginni (miðað við oft áður) og ég hlakka gríðarlega til þess að fá mér McDonald's hamborgara. Það þarf ekki mikið til að gleðja mig...

Eins og til dæmis fimmaurabrandarar. Þeir eru uppspretta endalausrar gleði hjá mér. Þá er nú alveg málið að koma með nokkra...

Allir krakkarnir í skólanum spila körfubolta í frímínutum nema Gvendur. Hann hefur engar hendur.

Allir í bekknum mínum björguðust úr flóðinu nema Linda. Hún kann ekki að synda.

Allir krakkarnir eru góðir í leikfimi nema Gunni. Hann er algjör klunni.

Allir krakkarnir björguðust þegar skólinn brann nema Binni. Hann var inni.

Allir krakkarnir í bekknum náðu prófinu nema Baldur. Hann er svo einfaldur.

Allir í bekknum eiga góða foreldra nema Þóra. Mamma hennar er .......


Lag dagsins er ekki af verri endanum og hana nú.

En þar sem ég er að svíkjast um lag dagsins ætla ég að koma með heimasíðu aldarinnar!!!!!!!!

http://www.gnelson.demon.co.uk/Tripods.html

Friday, November 11, 2005

Það er leiðinlegt...

...að vera veikur. Ég er búinn að vera heima veikur í fjóra daga og það er alltaf jafn leiðinlegt að mygla í sófanum með einhverja þreytta flensu sem maður bauð ekki einu sinni í heimsókn. Flensa er eins og Whoopie Goldberg, enginn þolir hana en samt verður maður alltaf var við hana annað slagið og getur enga björg sér veitt. Það eina jákvæða í mínum veikindum var að ég fékk lánaða sjöttu séríu af Simpson á DVD hjá bróður mínum. "I thought when Marge joined the Police Academy, it would be all fun and games, like that movie; Spaceballs!! Hvílík snilld.

...að vera ný búinn að vera veikur. Þá er maður svo slappur og ekki alveg búinn að ná sér eftir veikindin og hefur ekki almennilega matarlyst. Það er ekki beysið að geta ekki étið, nefninlega. Ég er líka að fara að spila á rosa skemmtilegu balli í kvöld í Hlíðarbæ. Það er nú samt ekki bær heldur bara hús. Kannski er það gamall sveitabær en ég held nú samt ekki. Sennilegast þykir mér að nafnið sé til þess ætlað að blekkja fólk. Svona eins og Vín. Maður fer í Vín, en það er ekki til neitt vín þar. Bara ís og pottablóm. Hvað er málið? Drífa sig að skíra staðinn þá bara "Ís og pottablóm".

...að vera ný búinn að vera veikur og fara loksins út í ferska loftið og misstíga sig og meiða sig í fótnum. Það kom samt ekki fyrir mig. Sem betur fer.


Lag dagsins er "Manimal" með WASP en það er einmitt tileinkað Whoopie Goldberg.