Bloggið Halla

Wednesday, August 30, 2006

Screw you guys, I'm going home...

Gleðitíðindi berast nú úr sjónvarpinu mínu. South Park er að byrja á Sirkus. Það eru góðar fréttir fyrir svona krakka eins og mig því ég hef valið þann veg í lífinu að vera óþroskaður og óupplýstur. Músík og teiknimyndir færa mér miklu meiri gleði en fréttir um stýrivexti, verðbólgu, hryðjuverk, árekstra og líkamsárásir.

Lag dagsins er: "Happiness is a warm gun" með Hinum Bítluðu (e. The Beatles)

Góðar stundir með Pinan Farina!

Tuesday, August 22, 2006

Tímamót

Ég hef ákveðið að láta af allri ljóðaiðkun í bili og þess í stað ætla ég að vera vélaviðgerðabrjálæðingur með smurningu í hárinu, borða heddpakkningar í morgunmat og skeina mér með olíuklístruðum grisjum og gaddavír.

Annars er það að frétta af mér að ég byrja í nýju vinnunni minni á mánudaginn kl. 10.00 í Tónlistarskólanum. Það er ekkert nema allt gott um það að segja og hananú.

Fór að gefa öndunum í dag. Sko endur, ekki andar. Ég er mikið að pæla hvernig endurnar viti hvað sé andapollurinn. Ef maður gerir poll og skírir hann andapoll koma þá bara endur? Er það bara svoleiðis? En ef ég geri Pamela Anderson-poll? Hmmmm...

Lag Dags: "Current of Love" með David Hasselhoff, bara fyrir Stebba Gunn sem er búinn að týna ritvélinni sinni og hættur að uppfæra sitt blaug.

Friday, August 18, 2006

Veikur

Ég er veikur. Vírus hefur komist í skránna heilsa.exe. Það er á döfinni að límast í sófa eilífðarinnar og missa öll tengsl við umheiminn með hjálp DVD og Coca-Cola. Bara yfir helgina samt.

Mér hefur verið ráðið frá því að leggja fyrir mig frekari ljóðaiðkun. Það er ekki á hverjum degi sem það gerist þó að það komi fyrir.

Ætlaði að fara á heitan fimmtudag í deiglunni í gær en meikaði það ekki sökum heilsa.exe. Fuzz og sway, og hananú!

Lag daxins er öll lög með Poison, Skid Row, Mötley Crue og Quireboys. Líka "Sleeping my day away" með D.A.D. og "Son of a bitch" með Accept.

Thursday, August 17, 2006

Það varð mér að yrkisefni

Hlý er sumargolan
loftið þrungið andstreymi eftirsjár.
Ungur vindurinn leikur sér
en sér ekki.

Hversu fersk er minning
sem öll nöfn hefur fengið.
Autt sem óskrifað blað einfaldlaikans
hjúpað hulu sakleysis.

Það var ljóst svo löngu áður
að ég myndi drekka í mig galdur minnisleysis.

Wednesday, August 16, 2006

Halli á Radiohead tónleikum

Ommi! Stones og Pearl Jam hljómar mjög vel þó ég sé ekki bjartsýnn á að meika það á þessa tónleika. Þó svo að ég myndi alveg láta sjá mig dauðan á Radiohead tónleikum þá myndi ég ekki meika þá lifandi... Það er ekki að ég sé eitthvað rokk-snobb heldur er ég bara staðfastur minni sannfæringu um hvað sé góð músík og hvað sökki. Hafandi sagt það þá vil ég benda á að áður en Sigurrós þótti rosa fín músik í útlöndum þá þoldi enginn sem ég þekki þessa hljómsveit og þótti hún tilgerðarleg. Í dag eru allt í einu allir, að sönnum rokkurum og músikloverum undanskildum, farnir að tjalda í Ásbyrgi og ég veit ekki hvað til ná tónleikum með þessari frábæru hljómsveit. Hver sem ástæðan er þá get ég bara ekki samþykkt þessa drengi. Ef fólk vill endilega elska þessa hljómsveit þá er það bara í fínu lagi en ekki snobba fyrir músík sem þykir fín og töff. Ég skal bara hlusta á David Gilmour og Steve Vai heima í stofu á meðan og allir geta verið vinir.

Alli! Gott að sjá þessar myndir úr fortíðinni. 2003 segiru... ég er ekki viss en ég held að ég hafi ekki keypt þessa skyrtu fyrr en 2004. Heimir var einmitt í henni á söngvakeppni framhaldskólanna og það var 2004 og þá var hún ný. En, whatever, þessi ártöl eru öll farin að skolast til hjá mér... of mikil öldrykkja gæti verið að spila inní...

Enginn vildi tjá sig um lag dagsins síðast með hinni frábæru hljómsveit "Alien Death" en það band er ekki til...eða hvað?

Lag dagsins er "Hoppa í Polla" með Sigurrós. Allir að hlusta á það og hugsa um hvort þetta sé góð músík really!!

Friday, August 11, 2006

Royal Albert Hall

Þar er best í heimi að fara á tónleika. Það er ekkert sem kemst nálægt því.
Ég er að bíða eftir einhverju bitastæðu á dagskrána hjá þeim svo að ég geti farið að skipuleggja ferð til London. Eða til Köben. Það er bara ekki um auðugan garð að gresja því það er soldið "off season" í gangi á þessum tíma árs.

Ef einhver veit um góða tónleika einhversstaðar eða vill koma með mér og bróður mínum til London að hanga í Denmark street, þá er bara málið að komast að því hvar ég á heima og dingla bjöllunni minni.

Sá einhver Wolfmother hjá Leno? Eru þeir góðir eða vondir? Að mínu mati eru þeir bestir í heimi af nýja rokkinu og þá er nú ekki mikið sagt! Tvíræðni?

Lag dagsins er "The Sea of Constant Wonder" með hljómsveitinni Alien Death.

Wednesday, August 09, 2006

Versló

Ok. Ég náði nú að vera fullur um versló. Ég spái að það eigi nú bara eftir að ýta undir aukna brennivínsdrykkju og æl í framtíðinni. Alli félagi var að vinna (fokk) um helgina en ég var búinn að ákveða að detta í það með honum. Það verða nú fleiri tækifæri til þess...


Í tilefni þess, þá dreymdi mig um versló að ég væri að keyra fullur. Ég veit ekki hvað er að mér. Hvern dreymir alltaf svona? Svartur að keyra...

Lag dagsins er: "The rain of champagne in the train of crane" með hljómsveitinni Refrain.

Thursday, August 03, 2006

Afskræming expressjónismans

Blogveröldin á það svo sannarlega til, eins og svo margt í þessum heimi, að vinda upp á sig. Það er því svo komið fyrir síðunni minni að hún á hvorki meira né minna en fjóra yfirlýsta fylgjendur sem lesa skrif mín að staðaldri. Hafa þessir hvervöllu lesendur nú stofnað hagsmunasamtök til verndar geðheilsu höfundar og sigla fleygi svikanna undir yfirskriftinni "Halli á hæli 2006". Í ljósi þessa lítillækkandi aðstæðna hef ég tekið ákvörðun um það að skrifa bara um atvik hvers dags í senn eins og svo margir stunda í blogheiminum en hef ég mikið sett mig gegn þess konar tilgangslausu þvaðri. Hygg ég að þetta verði til þess að forystumenn þjóðfélagslegrar niðurbælingar dragi saman seglin í ofsóknum tjáningarfrelsis.

Miðvikudagur 2.ágúst:

OMG hvað það er pirrandi að þurra að vakna sona ógesla snemma alltaf:p Ég var svo þreyttur í allan dag því ég var að horfa á Rockstar í gær og okkar maður Magni var sveittur í massafíling og miklu betri en síðast og maðurinn í dómnendini sagði að hann væri rosa góður. Ég er viss um að hann vinnur þetta en mér finnst samt ekki margir góðir þarna sko allavega þoli ég ekki þennan Tommy Lee sem var trommuleikari en ég hélt að hann hefði verið giftur Pamelu anderson en ég er ekki viss hann var í einhverri hljómsveit Gunsen róses held ég eða mótorhedd eða ekkvað. Ég var svo búinn þegar ég kom úr vinnunni að ég bara lagði mig og grjótsofnaði LOFLMAS!!! Núna húkir mar bara fyrir framan imbann og bíður eftir Rockstar þokkalega ætla ekki að missa af því. Sjáumst seinna tjellingar og massar...

DISCLAIMER: Atburðir þeir er lýst var hér á undan eiga sér enga stoð í raunverleikanum og þurfa ekki að hafa átt sér stað.

Lax of the dax er að þessu sinni slagarinn góðkunni "Friggin in the Riggin" með Anthrax. Þeir sem vita hvaða lag þetta er, eru snillingar og ekkert annað og hananú.

Tuesday, August 01, 2006

Skipta um...

...föt

...skoðun

...vinnu

...dekk

...kló

Það er hægt að skipta um ýmislegt.
Það er meiraðsegja hægt að fara til útlanda og skipta um veður.

Nú er ég til dæmis að fara að skipta um stöð.

Versló Bjór.

Lag þessa dax: "Ashes to ashes" með David Bowie. Ef maður drekkur heila vodkaflösku og lemur hausnum á sér í vegg á meðan maður hlustar á þetta lag í botni þá þarf meður að hugsa sinn gang.